
Segja má að með merkimiðunum okkar fái ég útrás fyrir léttklikkaðan húmor minn og er það von mín að það takist án þess að það fari fyrir brjóstið á of mörgum. Ærumeiðing er amk alls ekki ætlun mín með þessum skreytingum þó svo að sumir hafi bent mér á að t.d. miðinn með Davíd sé heldur svæsinn þá er það bara svo að menn í stjórnmálum og öðrum leiðindum verða bara að kunna að taka svona skotum. Ég ber einnig virðingu fyrir öllum trúarbrögðum og náttúrudýrkun þó svo að sjálfur trúi ég bara á vísindin og mátt gersveppsins. Mér dettur þó ekki í hug að gera grín af frelsara múslima og þori ekki einu sinni að nefna hann á nafn hér að ótta við að upp hefjist ný krísa eins og geisaði hér í Danmörku ekki fyrir svo löngu.
Nóg um það hvurnig verða miðarnir til? Jú þannig er að ég fæ flugu í
hausinn jafnvel nokkrar, smíða svo miða úr þeim í huganum og ber hugmyndina svo
undir Bjarne Rasmussen, eða Bjalle eins og hann er oft kallaður, sem
sem er teiknarinn okkar. Bjarne er
sprenglærður teiknari, mentaður hér í Danmörku í The Animation Workshop i Viborg
1999 - 2001. Hann hefur svo unnið sem teiknari bæði hér í DK og í Frakklandi. Meðal verka hans er
teiknimyndin La Prophétie des Grenouilles sem menn geta googlað til frekari glöggvunnar en auk þess
hefur þessi ungi hressi piltur töfrað fram hin ýmsu listaverk sem finna má á
veggjum eða í skúffum heima hjá honum. Samstarfið við Bjarne gengur framar
vonum og er hann fljótur að ná stemningunni sem ég er að leita að á miðunum. Við hjá
nIcebrew hrósum happi yfir því að fá að njóta aðstoðar Bjarne um ókomna framtíð.
Það má svo enn fremur taka fram að suma miðana teikna ég svo sjálfur þegar ég er
í stuði...eins og t.d. hinn sniðuga
munk :)