|
Hér er undarlegur drykkur á ferð sem tvinnar saman þá tvo
hluti sem mér eru hvað kærastir þegar kemur að góðmeti,
súkkulaði og bjór. Bjór þessi er dálítið hulin ráðgáta,
hann virðist vera bruggaður í Belgíu en erfitt er að komast að
því hvaða brugghús það er sem bruggar hann. Bjórinn er
hins vegar bruggaður fyrir súkkulaðiverslun í Barcelona,
Xocoa. Þetta er annars bara hin ágætasta hressing,
súkkulaðibrúnn í glasi og angar af súkkulaðikonfekti. Í
munni er um léttan sopa að ræða með lítilli fyllingu, er í
raun mun þynnri en ég hafði búist við. Þetta er
svolítið eins og kolsýrð kókómjólk á bragðið, mjög skondið.
Já ekki vondur drykkur alls ekki en samt er erfitt að kalla
þetta bjór. Bjór er þetta engu að síður, bruggaður úr
malti, vatni, geri og humlum. Mæli alls ekki með þessum
drykk nema svona til að svala forvitninnim það er
nefnilega alltaf gaman að smakka furðulega bjórdrykki og þessi
er án efa einn slíkur. |