web log free Bigfoot Ale
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Sierra Nevada Bigfoot Ale

stíll :

Barley Wine

brugghús :

Sierra Nevada Brewing Company

land :

Bandaríkin

alkóhól :

9.6%

fyrst smakkað :

02.09.2005

smökkunarstaður :

Árósar

Ákvað að prófa einn bandarískan til tilbreytingar en bandarísk mikrobrugghús er rómuð fyrir góðan bjór.  Hér mætir manni þétt og mikil lykt, ögn sæt og svo dökk. Í munni er ekkert sem tengir nefið við.  Svakalega bragðmikill bjór og sér í lagi beiskur í munn og í raun yfirþyrmandi.  Alkóhól er greinanlegt.  Já þetta er í raun allt of öflugur bjór fyrir minn smekk og ég verð að segja að hann bætist í hóp þeirra örfáu bjóra sem ég hef hellt niður.  Já þessi er einfaldlega með þeim hræðilegri sem ég hef smakkað og þá er maður ekkert að pína þá ofan í sig.  Bjór þessi er álíka beiskur og Fisherman friend en það er eitthvað sem maður vill ekki hafa í bjór heldur í hálstöflum.  Gef þessum hálfa flösku. VARÚÐ!