|
Hér er
maður kominn með ágætis lager frá Grikklandi. Þeir eru
nú frekar þekktari fyrir Uzo og fetaost en bjórgerð en
þessi lager er samt sem áður ágætis slurkur. Maður
finnur þessa hefðbundnu humla í nefi ásamt málmkeim. Í
munni gefur hann góða eða meðalgóða fyllingur með þrælfínt
eftirbragð. Þetta er kitlandi og gosríkur karl og í raun
bara ósköp venjulegur lager. Í miklum hitum Grikklands
þá held ég að þessi fari vel niður ííííískaldur. |