|
Það eitt að horfa á barþjóninn framreiða
þennan bjór kom munnvatnskirtlunum í gang í fyrsta sinn sem ég
smakkaði þennan ferska ávaxtabjór í Burssel. Í
glasi sínu, se m
líkist helst koníaksglasi að lögun, nýtur þessi bjór sín til fulls með sinn
fallega tæra og vínrauða blæ og svo mikla ljós bleika og mjúka
froðu efst. Ummmm! Belle-Vue Kriek er einn af
þessum alvöru
Kriek
bjórum sem bygðir eru á hinum forna villibjór,
Lambic.
Þetta er freyðandi og mildur bjór með möndlukeim og miklum kirsuberja
blæ sem skapar einstakan ferskleika. Berin gera bjórinn
óneitanlega sætan en hann nær þó ekki að verða væminn þar sem
hann er ögn þurr á tungu og svo finnur maður hinn
einkennandi súra lambic mysukeim í gegn. Bjór þessi er afar
hentugur sem fordrykkur í veislum af öllum toga og sér í lagi
í grillveislum sumarsins! |