|
Brewpub
er nýr bruggpöbb í hjarta Kaupmannahafnar. Þar
er hægt að fá góðan bjór beint af kúnni og einnig
mat. Atlantic IPA er fyrsti bjór þeirra sem
kemur á flöskur og fæst hann alls ekki víða.
Þetta er myndarlegur bjór í glasi, koparlitaður með
mynduga froðu. Í nefi blómlegur með humlum og ögn plastpokakeim
hmm?Annars bragðmikill bjór en mildur með einkennandi
IPA bragð. Þægileg beiskja og humlar tróna yfir
látlausu sætu maltinu sem þó er vel merkjanlegt
og skapar þægilegan bakgrunn. Smá súr-beiskur greip
keimur lurir einnig í bakgrunni. Sopanum lýkur svo
með ægilega ljúfu eftirbragði sem dekrar við
skylningarvitin ummm. Ég verð
að gefa þessum bjór góða einkunn og mæla eindregið með honum. Hlakka
einnig til
að prófa hann á krana næst þegar ég er í Köben. |