web log free Asahi Super Dry
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Asahi Super Dry

stíll : Lager
brugghús : Carlsberg
land : Danmörk
alkóhól : 4,6 %
fyrst smakkað : Einhvern tíman
smökkunarstaður : Reykjavík

Japanskur mildur lager.  Dálítið stórt nafn í hinum Japanska bjórheimi.  Um er að ræða lager brugguðum úr byggi, maís og hrísgrjónum.  Ég smakkaði þennan bjór fyrir lifandi löngu en aldrei skrifað hann inn fyrr en nú. Ástæðan er líklega sú að nú fæst hann hér á Íslandi.  Asahi er einn af þessum þægilegu bjórum sem passar mjög vel við sushi sem auðvitað er Japanskur réttur. Sushi er viðvkæmur réttur sem ekki má drepa niður með of sterkum og humluðum bjór. Asahi er tær og fallegur í glasi með netta froðu sem endist dálítið.  Humlarnir koma mátulega í gegn þannig að beiskja er í meðallagi.  Maltið er lítt áberandi.  Hann er mjúkur á tungu og óvenju góð fylling sem stafar líkast til af maísnum og hrísgrjónumum.  Þessar korn tegundir skapa svo þægilegt yfirbragð á bjórnum sem maður finnur ekki í venjulegum lager.  Mjög skemmtileg tilbreyting.