web log free Anchor Barley Wine
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Anchor Old Foghorn Barley Wine

stíll :

Barley Wine

brugghús :

Anchor Brewing Company

land :

Bandaríkin

alkóhól :

8.2 %

fyrst smakkað :

3.05.2009

smökkunarstaður :

Arósar

Libery ale og Steam Beer frá þessum köppum eru gríðarlega góðir, þess vegna voru miklar vonir bundnar við þennan barley wine frá þeim.  Þetta er fallegur bjór en með mikla sætu, malt og ögn þurrkaða ávexti í nefi.  Allt gott og blessað, hins vegar var ég ekki nógu sáttur við bragðið fyrst þegar ég smakkaði hann 2009 en nú er ég mjög sáttur.  Hann er mildari samt en maður er vanur með barley wine en þó mjúkur með þægilega fyllingu. Humlar eru ekki mjög áberandi öfugt við það sem stendur á merkimiða.  Það er heilmikil sæta í þessum karli og ljúfur hiti.  Ekki mikið gos og vínandinn er lítið áberandi.  Í heildina afar fínn bjór þó svo að hann mætti vera þróttmeiri miðað við stíl. Það er kannski fínt að hefja barley wine rannsóknir sínar á þessum og færa sig svo í öflugari karla.