web log free Aass Juleøl
     

HEIM

  bjórdómar
fréttnæmt
  pistlar ofl
 
  fróðleikur
 
 
 

Aass Juleøl 6.5%

stíll : Dökkur Bock
brugghús : Aass Bryggeri
land :  Noregur
alkóhól : 6.5 %
fyrst smakkað : 18.12.2006
smökkunarstaður : Árósar - Danmörk

Hér er á ferð bjór frá fændum okkar Norðmönnum og þetta er jafnframt minn fyrsti norski bjór.  Aass brygghúsið hefur bruggað bjór síðan 1834 og jólabjór þeirra hefur endurtekið verið tiltaður besti norski jólabjórinn.  Bjór þessi er sagður sér í lagi viðeigandi drykkur með hinum norska rétt "lutefisk" hvað sem það nú er. Í nefi má finna sætt rúgbrauð og heslihnetur og í munni er hann mildur og ljúfur með mildum humlum og sæta ristaða malttóna. Pínu kryddaður með dálítinn bock fíling. Þægilegur, sætur malteftirkeimur.  Í held sinni notalegur og góður bjór sem óhætt er að prófa en það vantar þó svona jólastemninguna í hann.  En sem bock þá er þetta bara fínn karl.